« Að gera Jesús úr manni | Aðalsíða | Hver má fjalla um hvað? »
29. september 2005
Af frásögnum manna
Á hverjum degi ber fólk frásagnir á milli hvers annars um atburði líðandi stundar. Fólk segir mismunandi frá og er mishlutdrægt. Sama gildir um frásagnir sem koma frá samtökum fólks, eða fyrirtækjum sem fólk stofnar. Fjölmiðlum.
En skyldi nú vera rétt að banna einhverjum að segja öðrum fréttir? Auðvitað ekki. Ef maður treystir ekki viðkomandi þarf maður ekki að hlusta á hann. Maður talar bara við einhvern annan.
Ég veit ekki hvort að Davíð Oddsson skilji þetta. Þegar hann var spurður hvað í fréttaflutningi ákveðins aðila væri hlutdrægt svaraði hann því til að hann þyrfti ekki að tilgreina neitt af því að „öll þjóðin sæi það.“
Nú þarf enginn að hlusta á fréttaflutning 365. Samt gerir fólk það þrátt fyrir að „öll þjóðin“ viti af því að eignarhaldið hafi áhrif á fréttaflutninginn ef mark er takandi á Davíð Oddssyni.
Af hverju vill Davíð Oddsson fjölmiðlalög? Af hverju treystir hann ekki fólki sem hann fullyrðir sjálfur að það viti af áhrifum eigenda 365 til að meta hvort það sé ástæða til einbeita sér alfarið að öðrum fjölmiðlum til að fá almennilegar fréttir?
Hvað veit Davíð Oddsson sem „öll þjóðin“ veit ekki um hvað sé hverjum og einum fyrir bestu að hlusta á?
Oddgeir Einarsson kl. 16:41