« Hvað ef? | Aðalsíða | Af frásögnum manna »
29. september 2005
Að gera Jesús úr manni
Katrín Jakobsdóttir skrifaði nýlega á vefritið Múrinn.is um manninn sem við þekkjum sem Jóhannes í Bónus: „Ekki skal gert lítið úr því þjóðþrifaverki að selja mat á lágu verði en kannski óþarfi að búa til Jesús úr manni sem fyrst og fremst fann snjalla leið til að græða peninga.“ Nú er kannski óþarfi að blanda Jesús í málið, en hvers vegna ekki að líta upp til þeirra sem eru snjallir að „græða peninga“? Undirritaður dáist mjög að þeim sem tekst að skapa verðmæti þar sem engin voru áður, þeim sem finna nýjar leiðir til að lækka vöruverð og bola keppinautum af markaðnum með hjálp neytenda og notenda, þeim sem tekst að vera snjallari en við hin, þeim sem sjá tækifæri þar sem aðrir sjá einokun eða erfiðleika. Þetta er hugarfarið sem skilur Íslendinga frá öpunum, og hugarfarið sem færði okkur farsíma, tölvur, GoreTex-fatnað, örbylgjuofna, spinnerfelgur, stafrænar myndavélar og glampafrí gleraugu á verði sem hinn almenni borgari ræður við að greiða. Á meðan við höfum græðgi þá höfum við hvata sem mun lyfta okkur enn hærra en okkur getur dreymt um. Látum ekki öfund og sjálfsupphafningu eyðileggja þá vitneskju fyrir okkur.
Birtist í DV 28. september 2005. Tenglum bætt við hér.
Geir Ágústsson kl. 08:18