« Löggjafarvaldið hrifsað | Aðalsíða | Peningahyggja sósíalista »
30. ágúst 2005
Skattgreiðendur og löggjafarvaldið
Færslan hans Gyfla hér á undan um hrifsun löggjafarvalds leiðir hugan að því hvort tillaga mín að embætti umboðsmanns skattgreiðanda sé mögulega til þess fallin að minnka útgjöld ríkisins. Tillaga mín er þó afar vond af grundvallarástæðum. Skattgreiðendur hafa hagsmuni sína nefnilega algerlega í höndum sér. Þeir geta t.d. stofnað og kosið stjórnmálaflokk sem skrúfar fyrir eyðsluna með því að leggja niður eða selja ríkisstofnanir. Eða setur a.m.k. lög sem gerir kleift að reka fyrirvaralaust yfirmenn stofnana sem vísvitandi eyða um efni fram.
Oddgeir Einarsson kl. 17:01