« Enn af leigubílum | Aðalsíða | Sjúkdómur eða hegðun? »

26. ágúst 2005

Samúð fyrir morðhundum

Samúð ákveðins hóps vinstrimanna fyrir morðhundum gengur stundum of langt. Nú skal vitnað í Múrinn í gær sem birtir pistil undir yfirskriftinni „Djarfir Danir“:

Dönsku samtökin Oprør ... hafa stutt PFLP í Palestínu og FARC í Kólumbíu með talsverðum fjármunum síðastliðna tólf mánuði. Þetta hafa Danirnir gert fyrir opnum tjöldum þrátt fyrir að bæði FARC og PFLP séu á fyrrnefndum lista ESB yfir hryðjuverkasamtök.

Markmið Oprør með þessum peningasendingum er ekki síst að vekja athygli á því að nefndur listi ESB styðst ekki við neinar lagalegar skilgreiningar heldur er hann einungis afrakstur af samningaþófi aðildarríkjanna um það hverjir eigi að vera á listanum og hverjir ekki.

Frétt Reuter-fréttastofunnar í gær:
Marxist rebels on Wednesday killed at least a dozen peasants who were growing crops used to make cocaine in the northwestern Colombian jungle, a local official said.

Members of the Revolutionary Armed Forces of Colombia killed at least 11 men and one woman they found in coca bush fields between the towns of Taraza and Valdivia, Jorge Mejia, deputy to the governor of Antioquia province, told Reuters.

The rebel force, known by its Spanish initials FARC, relies on coca for much of its funding and often kills growers who refuse to cooperate or work with rivals.

Þarna gleymdist víst að segja að FARC reiðir sig á tekjur af kókaínsölu og frjáls framlög frá „djörfum“ evrópskum vinstrimönnum til að standa undir vopnakaupum og uppihaldi á skæruliðum í fjöllum Kólumbíu.

Geir Ágústsson kl. 08:57