« Clint Eastwood | Aðalsíða | Jafnræðishugtak Vinstri grænna »

11. ágúst 2005

RÚV af (auglýsinga)markaði

Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður frá Samfylkingunni, ritaði fyrir skömmu áhugaverða grein um RÚV og stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Nokkrar tilvitnanir eru nú við hæfi:

Tilvist RÚV á auglýsingamarkaði birtist í rekstrarerfiðleikum annarra fjölmiðla og dregur mátt úr metnaðarfullri dagskrárgerð annnarra fjölmiðla. Hin öfluga staða RÚV á auglýsingamarkaðinum kemur einnig í veg fyrir að nýir aðilar komist inn á markaðinn.

Ríkisútvarpið er ekki aðeins með ráðandi stöðu á auglýsingamarkaðinum heldur fær það að auki 2,2 milljarða með skyldubundnum afnotagjöldum og auk þess stórfé úr ríkissjóði en tap á rekstri RÚV árin 2001 og 2002, var yfir 500 milljónir króna sem skattborgarar greiða.

Auglýsingamarkaðurinn er samkeppnismarkaður. Það eru engin öryggis-, menningar- eða lýðræðisleg rök fyrir því að RÚV sé ráðandi aðili á auglýsingamarkaði.

Ríkisvaldið hefur verið að fara út af samkeppnismarkaði í mörgum atvinnugreinum og það er vel. Það er því tímaskekkja og beinlínis hættulegt fjölbreyttu úrvali fjölmiðla að ríkið þrengi að öðrum frjálsum fjölmiðlum með þátttöku sinni á auglýsingamarkaði eins og það gerir nú.
Undir allt þetta getur undirritaður tekið og rúmlega það. Ríkisvaldið á ekkert erindi á auglýsingamarkað eða nokkurn annan markað ef því er að skipta. En þrátt fyrir annars prýðilegar ábendingar hjá Ágústi eru nokkur atriði sem má gera athugasemdir við í grein hans. Ágúst segir t.d. á einum stað:
Samfylkingin talar ekki fyrir því að ríkisfjölmiðillinn eigi ekki rétt á sér, þvert á móti. Það eru sérstök rök fyrir tilvist ríkisfjölmiðils á fjölmiðlamarkaði, eins og öryggis- og fræðslu- og lýðræðishlutverk ríkisfjölmiðilsins.
Skömmu áður hafði Ágúst réttilega bent á að árlega fái RÚV „stórfé úr ríkissjóði en tap á rekstri RÚV árin 2001 og 2002, var yfir 500 milljónir króna sem skattborgarar greiða“. Hvernig ætlar Ágúst og félagar hans í Samfylkingunni að keyra saman áframhaldandi rekstur RÚV og fjarveru RÚV frá auglýsingamarkaði? Ágúst nefnir hvorki að til þess þurfi stórfellda endurskipulagningu RÚV þannig að rekstur stofnunarinnar sé a.m.k. á núllinu eftir innheimtu skylduáskriftargjaldanna né að RÚV þurfi einfaldlega að minnka umsvif sín, t.d. með því að selja frá sér rekstur Rásar 2 eða Sjónvarpsins.

Hugsanlegt er að Ágúst skýri mál sitt nánar við seinna tækifæri (nema hann hafi þegar gert það að undirrituðum ókunnugu), en hugmyndir hans duga hálfa leið og líklega er undir okkur hinum komið að brúa bilið. Niðurstaðan hlýtur samt að vera augljós, og ríkisrekinn fjölmiðill hlýtur fyrr eða síðar að hverfa af markaði með einum eða öðrum hætti, að stóru eða öllu leyti.

Geir Ágústsson kl. 15:00