« Skattgreiðendur og löggjafarvaldið | Aðalsíða | Vinstrimenn: Lífið snýst um meira en peninga »
30. ágúst 2005
Peningahyggja sósíalista
Mörgum er enn í fersku minni umfjöllun Bjarkar Vilhelmsdóttur fráfarandi borgarfulltrúa Vinstri-Grænna í Kastjósi RÚV 19. ágúst sl. um líðan fátæks fólks. Hún kvað það að sjá hvernig tilteknir efnaðir menn eyddu peningum sínum og sjá hvernig þeir lifðu „gerði fátæktina svo erfiða“.
Hamingja fólks verður ekki mæld í peningum. Þannig geta þeir sem eiga ekki mikla peninga t.d. átt báða foreldra á lífi og fjölda barna á meðan einhver efnaður á ekkert slíkt.
Ég bíð eftir því að næsti fjölskyldulausi vinstrigræninginn komi fram opinberlega og kvarti undan því hvað honum liði miklu verr að sjá hvernig þetta fjölskyldufólk umgengst ættingja sína.
Eða eru peningar allt í heimi sósíalista?
Oddgeir Einarsson kl. 17:20