« Eignarréttur og framtíðin | Aðalsíða | Enn af leigubílum »
24. ágúst 2005
Mannsæmandi kjör eru gott mál
Múrinn spyr:
[U]mönnunar- og fræðslustörf á Íslandi eru allt of lítils metin og illa launuð og því þarf að breyta. Hér er um að ræða fólkið sem sér um uppeldi íslenskra barna og hefur því líklega meiri áhrif á framtíðina en nokkur önnur starfsstétt. Viljum við ekki að henni séu búin mannsæmandi kjör? (#)Þar sem þessi spurning kemur af ritinu Múrinn má ætla að spyrill hafi eftirsvarandi svar á reiðum höndum: Ríkið á að rífa enn meira fé úr vösum þeirra sem ekki vinna umönnunar- og fræðslustörf svo þeir sem vinni slík störf geti hækkað í tekjum. Þetta er a.m.k. hin kunnugleg þula þeirra sem vilja að ríkisvaldið sé sem stærst og frekast.
Hin augljósa og raunverulega lausn er aftur á móti gjörólík. Vinstrimenn þurfa að læra að munur er á milli þess að ríkið fjármagni eitthvað og að ríkið veiti það. Ef íslenskir vinstrimenn munu einhvern tímann feta í fótspor skoðanabræðra sinna á meginlandi Evrópu og læra að skilja þarna á milli er jafnvel hætt við að þeir detti inn á lausn ofanrædds vandamáls, sem er vitaskuld einkavæðing umönnunar- og fræðslustofnana ríkisins.
Stjórnendur allra stofnana hafa eitt að markmiði þegar þeir mæta til vinnu: Að hámarka þjónustu, tryggja gæði og halda skjólstæðingum sínum sem ánægðustum fyrir sem minnst fé. Til að tryggja að stjórnendur fái svigrúm til að vinna sína vinnu þarf að veita þeim aðhald markaðarins og neytandans. Til að koma því áleiðis þarf að einkavæða.
Hins vegar er ekki þar með sagt að ríkið hætti að fjármagna þjónustuna. Það er önnur saga (og styttri).
Geir Ágústsson kl. 16:36