« Lærdómur frá Litháen | Aðalsíða | The Lost Liberty Hotel »

5. ágúst 2005

Jafnrétti

Hvað er málið? Hvernig er hægt að mismuna ákveðnum hópi bara af því að einstaklingar innan hans fella hugi með fólki af sama kyni.

Dæmi um þetta er bann við því að samkynhneigðir frumætleiði börn frá útlöndum. Jafnvel þótt haldbærar rannsóknir lægju fyrir um að uppeldi hjá samkynhneigðum væri eitthvað verra (ef við ímyndum að til sé eitthvað algilt mat á því) en hjá gagnkynhneigðum væri afar vafasamt að neita þeim öllum um að fá að ættleiða börn. Þá væri mun eðlilegra að beita þessu fullkomna mati á vondu og góðu uppeldi á alla.

En það liggja ekki einu sinni fyrir neinar rannsóknir um verra uppeldi samkynhneigðra. Þvert á móti benda rannsóknir (hversu mikið sem hægt er að rannsaka þetta atriði)til annars.

Eftir stendur að meirihluti Alþingis hefur staðið á móti hommum og lesbíum í áraraðir, án þess að fyrir því séu gild rök, sjálfum sér til minnkunar.

Sannir frjálshyggjumenn vilja jafnrétti. Barátta samkynhneigðra er jafnréttisbarátta ólíkt t.d. baráttu sumra feminista fyrir réttindaskerðingu karlmanna til að tryggja einstökum konum ákveðnar stöður í samfélaginu. Það eina sem samkynhneigðir hafa beðið um er að fá sömu tækifæri og spila eftir sömu leikreglum og aðrir. Í sannri jafnréttisbaráttu er ekki þolandi að það taki einhvern tíma að ná jafnréttinu. Allt annað en strax er óþolandi.

Oddgeir Einarsson kl. 08:33