« Fall Sovétríkjanna til góðs eða ills? | Aðalsíða | Afnema ber öll lög um trúarbrögð og fjölskylduform »

17. ágúst 2005

Hugmyndafræði R-listans sáluga

Loksins hefur vinstrimaður skrifað setningu þar sem orðin R-listinn og hugmyndafræði koma bæði fram:

Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að félagsfundur Vg neyddist til að hafna [tillögu Samfylkingar um skiptingu sæta á R-listanum milli flokka] og bjóða fram undir eigin nafni, enda braut hún gegn grundvallaratriðum í hugmyndafræðinni á bak við R-listann. (#)
Þetta hefur verið langþráð setning í fjölda ára hjá þeim sem ekki hafa séð sér fært að kjósa eitthvað bara til að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Nú er biðinni loksins lokið.

Geir Ágústsson kl. 10:56