« Jafnræðishugtak Vinstri grænna | Aðalsíða | Fall Sovétríkjanna til góðs eða ills? »
16. ágúst 2005
Höldum-völdum samstarfi slitið
R-listinn sundraðist á fundi vinstrimanna í gærkvöldi. Ekki tókst að ná samkomulagi um hver fengi hve mörg embætti, hverjir fengju stjórnarmennsku hvaða borgarfyrirtækja og hverjir rækju lestina. Samstarf sem frá upphafi byggðist á því að halda völdum hefur nú mætt óumflýjanlegum örlögum sínum. Stefnur og málefni voru aldrei rædd enda er það óþarfi þegar hvorugt er til staðar innan hóps.
Sundrung R-listans eru góðar fréttir fyrir Reykvíkinga. Sundraðir vinstriflokkar án leiðtoga sem getur kæft alla innri mótstöðu mega sín lítils í borgarmálapólitíkinni. Þetta ryður brautina fyrir öllu skynsamari stjórnarhætti í Reykjavík. Helstu verkefni borgaryfirvalda liggja í því að greiða niður skuldir, fækka sköttum og lækka, losa borgina frá rekstri þjónustu- og veitufyrirtækja, losa borgina frá beinum afskiptum af rekstri grunnskólanna, örva hraðari uppbyggingu húsnæðis með hjálp markaðsaflanna og fækka borgarstarfsmönnum um heilan helling svo þeir geti reynt fyrir sér á hinum frjálsa markaði í miðju uppgangstímabili hagvaxtar og bullandi atvinnu.
Spennandi tímar eru í vændum. Vonandi tekst að gera gott úr þeim.
Geir Ágústsson kl. 07:02