« Nýja hagkerfið | Aðalsíða | Löggjafarvaldið hrifsað »

29. ágúst 2005

Hinn ósýnilegi jafnréttisskógur

Segja má um jafnréttishugtakið að margir sjái ekki skóginn fyrir trjánum í baráttunni fyrir jafnrétti fólks.

Dæmi um þetta er hin pólitíska samstaða um jafnan rétt kvenna og karla til ríkiserfða í Danmörku en búast við þessum breytingum innan skamms.

Það er í sjálfu sér skárra að bæði kynin af tiltekinni ætt geti komist í þetta embætti en ef einungis annað eigi möguleika á því.

Þetta skref í átt að jafnrétti er þó aðeins lítið tré í samanburði við þann skóg fólks sem útilokað er með lögum að komast í embættið, einungis vegna gena sinna.

Oddgeir Einarsson kl. 17:47