« Valdastólar keyptir fyrir pening borgarbúa | Aðalsíða | RÚV af (auglýsinga)markaði »

10. ágúst 2005

Clint Eastwood

Leikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood er á Íslandi. Fleiri þekkja til afreka hans á hvíta tjaldinu en stjórnmálaskoðanna hans, en maðurinn er mikill frjálshyggjumaður. Þó fjöldi eða frægð frjálshyggjumanna í heiminum hafi vitanlega ekkert með réttmæti stjórnmálastefnunnar að gera er vert að hafa Clint Eastwood í huga næst þegar einhver reynir að bregða þeirri mynd upp að frjálshyggjumenn séu allt veruleikafirrtir pabbastrákar. Varla þarf þó að taka fram að eiginleikar þeirra sem aðhyllast stefnuna eru heldur ekki rök með eða á móti stefnunni.

Oddgeir Einarsson kl. 11:23