« Hugmyndafræði R-listans sáluga | Aðalsíða | Af leigubílum »
18. ágúst 2005
Afnema ber öll lög um trúarbrögð og fjölskylduform
Á Íslandi ríkir trúfrelsi. Þess vegna væri fráleitt að ríkisvaldið skipti sé að efnisinntaki tiltekinna trúarbragða. Ef tiltekið trúfélag byggir á þeirri trú að samband karls og konu sé einstakt og heilagt umfram sambönd fólks af sama kyni er það mál þess fólks sem slíku trúir, safnaðarmeðlimanna, enda felst ekki í slíkri trú ofbeldi gagnvart neinum sem öðru trúir.
Sama gildir ef í trúarbrögðunum felst að sambönd samkynhneigðs fólk njóti blessunar í formivígsluathafnar. Ríkinu kemur það auðvitað ekkert við.
Ríkið skiptir sér þó af trúarbrögðunum með því að veita gagnkynhneigðum einstaklingum, sem hafa látið forstöðumann trúfélags síns vígja sig, ákveðna réttarstöðu að lögum, umfram samkynhneigða einstaklinga sem jafnvel hafa látið vígja sig hjá sama trúfélaginu. Þessi réttarstaða sem hinum gagnkynhneigðu er veitt varðar trúarbrögð afar lítið og felast m.a. í skattalegu hagræði hjóna.
Þannig er það mat ríkisins að trúarbrögð sem byggja á sambandi karls og konu séu æðri trúarbrögðum þar sem ekki er gert upp á milli sambanda á grundvelli kynferðis eða kynhneigðar aðilanna. Að mati ríkisins er rétt að gera einstaklingum ólíkra trúarbragða mishátt yfir höfði eftir afstöðu trúarbragðanna til sambands samkynhneigðra einstaklinga.
Hið rétta er auðvitað að allir einstaklingar eiga að vera jafnir fyrir lögunum óháð trúarbrögðum eða fjölskylduformi. Þess vegna á að afnema öll lög um trúarbrögð og fjölskylduform. Eftir stæði fullkomið frelsi og jafnrétti í þessum efnum. Einfalt og réttlátt.
Oddgeir Einarsson kl. 17:15