« Hass finnst í bíl í Kópavogi - og hvað með það? | Aðalsíða | Að hafa vondan málstað »

15. júlí 2005

Tvö dæmi um áhrif ríkisrekinnar verndar

Eitt helsta áhugamál stjórnmálamanna er að setja reglur og samþykkja boð og bönn í því augnamiði að vernda fólk, helst frá sjálfu sér. Afleiðingar þessa stjórnlyndis geta verið bæði jákvæðar og neikvæðar. Oftast eru þær neikvæðar. Tökum tvö dæmi:

Ostum fækkar: Í gær sagði Vefþjóðviljinn frá því hvernig sælkeraostar eiga undir högg að sækja í sístækkandi reglugerðaumhverfi Evrópu. Allskyns hreinslætis- og framleiðslufyrirmæli eru vel á veg með að útrýma öllu sem heitir sælkeraostar og sérframleiðsla. Hvaða lífum er verið að bjarga með því að einfalda ostaúrval neytenda?

Börn fá í auknum mæli átröskun: Hér er fjallað örlítið um fárið í kringum offitu í Bandaríkjunum og baráttu ýmissa sjálfskipaðra heilsupostula gegn sætindum og sykri af öllu tagi, að sjálfsögðu í nafni barnaverndar og almenningsheilla. Örlítil tilvitnun:

Nýleg skýrsla [..] segir að stúlkur niður í fimm ára aldur eru byrjaðar að eiga í vandræðum með líkamsímynd. Höfundar skýrslunnar draga þá ályktun að það væri vegna þess að stúlkur væru byrjaðar að örvænta um þyngd sína -- að hluta til vegna baráttu stjórnvalda gegn offitu ...
Er ekki hægt að læra einhverja lexíu hérna? Lexían gæti til dæmis verið sú að stjórnvöld eigi að einbeita sér að stöðva ofbeldi og þjófnaði en láta einstaklinga sjálfa um að taka ákvörðun um hvað þeir kaupa og setja ofan í sig. Fyrir börnin!

Geir Ágústsson kl. 07:42