« Sprungið dekk | Aðalsíða | Hið alræmda bandaríska heilbrigðiskerfi »
24. júlí 2005
Sérleyfi á hjálp
Hægri menn vilja jafn mikið og vinstrimenn hjálpa fólki sem getur ekki aflað sér lífsviðurværis. Eftir því sem efnahagslegt frelsi eykst batnar hjálpin og færri líða skort (heimild). Samt halda vinstrimenn áfram að hamra á því að maður verði að hjálpa öðrum og að samkenndin sé mikilvæg og svo framvegis, og þessvegna eigi kjósendur að velja þá.
Og það tekst. Kjósendur kjósa vinstriflokka því þeir vilja hjálpa ósjálfstæðu fólki. Og vinstriflokkarnir komast til valda og gera meiri skaða en gagn.
Svo virðist sem margir tengi frjálshyggjuna beint eða óbeint við félagslegan Darwinisma. Það er rangt og ósanngjarnt.
Við hægrimenn verðum að benda á að vinstrimenn hafa ekki einkaleyfi á hjálpsemi og góðvild. Við erum líka gott fólk.
Gylfi Ólafsson kl. 14:42