« Að einkavæða fyrirtæki | Aðalsíða | Hass finnst í bíl í Kópavogi - og hvað með það? »
14. júlí 2005
Ritskoðunarstofnun Íslands
Í þættinum Ísland í dag í gærkvöldi ræddu femínistinn Kristín Tómasdóttir og rapparinn Dóri DNA um réttmæti komu Snoop Dogg hingað til lands. Þar sagði Kristín meðal annars:
Í Bandaríkjunum er málfrelsi þannig að þú mátt segja það sem þú vilt. Og við ættum kannski að hugsa okkur aðeins um: Viljum við hafa það þannig eða viljum við ritskoða hluti sem gætu haft slæm áhrif?
Og hver ætli Kristín vilji að stýri Ritskoðunarstofnun Íslands? Femínistar? Kirkjan? Stalín?
Hulda Sigrún Haraldsdóttir kl. 14:21