« Hvað eru atvinnuveitendur að spá? | Aðalsíða | Eru gróðurhúsaáhrifin nauðsynleg til að minnka gróðurhúsaáhrifin? »
3. júlí 2005
Live 8
Ég hafði helvíti gaman að Live 8 tónleikunum þrátt fyrir að vera minntur á hungrið í Afríku. En það er kannski bara af því að ég er svo kaldur og vondur frjálshyggjumaður.
Því miður er ég mjög langt frá því að vera sérfróður um málefni þessarar heimsálfu. Skilst þó að líffræðilegar aðstæður til ræktunar matar eru þar víða ágætar og að stjórnmálaástandið þar sé óvíða heppilegt til að fólkið fái notið gæða landsins.
Ef við ímyndum okkur vandamál fólks í Afríku séu ekki stjórnmálaástandinu um að kenna, hvað er þá til ráða? Ég sat spenntur uppí sófa og beið eftir að fá svörin. Hvernig ætla Live 8 fólkið að redda þessu?
Það eina sem ég sá var stöðugt ákall til stjórnmálamanna um að fella niður einhverjar skuldir eða gefa peninga með einhverjum öðrum hætti. Hvers vegna í ósköpunum voru eigendur peninganna, fólkið, ekki hvatt til þess að láta peninga sína af hendi með því að gefa þá til fólks í Afríku eða greiða inn á þessar skuldir. Þetta var eins og ég færi að nöldra í nágranna mínum á 3. hæð stigagangsins um að neyða einhvern á 2. hæð til að vaska upp hjá einhverjum á 1. hæð. Ég hefði nú eins getað sýnt gott fordæmi, rölt niður, og vaskað upp sjálfur.
En fyrst á annað borð þurfti að snúa þessu upp í nöldur út í stjórnmálamenn þá hefði nú mátt beina kröftunum meira að því sem þeir einir geta lagað. Ég hefði t.d. viljað sjá leiðtoga ESB útskýra af hverju verið sé að greiða niður evrópska bændur með tollum sem teknir eru af afrískum bændum sem vilja selja vörur til ESB. Við núverandi reglur eru möguleikar fólks í Afríku afar takmarkaðir til að bjóða Evrópubúum að kaupa vörur. Hér þarf ekki meira til að koma en að aflétta hömlum á frjáls samskipti fólks (í þessu tilfelli í formi viðskipta) og hagur Afríku stóreykst.
Ekki veit ég hversu mörgum börnum væri forðað frá hungurdauða árlega með þessu. Né hversu mörgum rauðvínslegnum frönskum bændum myndi blöskra þetta aukna frelsi
Oddgeir Einarsson kl. 16:48