« Ritskoðunarstofnun Íslands | Aðalsíða | Tvö dæmi um áhrif ríkisrekinnar verndar »
14. júlí 2005
Hass finnst í bíl í Kópavogi - og hvað með það?
Fyrirsögn á frétt mbl.is:
Hass fannst í bíl í KópavogiÞetta er algeng fyrirsögn ef nafni sveitafélagsins og staðsetningu hassins er skipt út fyrir eitthvað annað. Hass finnst í bílskúrum, kjöllurum og klæðnaði í Kópavogi, Keflavík og Sandgerði og um leið birtist frétt um málið. Sjaldan eða aldrei er minnst á ofbeldisglæpi í tengslum við hassfundina. Sjaldan eða aldrei er talað um að viðkomandi hasseigendur hafi setið á milljónum í lausafé í tengslum við fíkniefnasölu. Sjaldan eða aldrei er sagt að börn hafi átt hlut í máli.
Nú er það auðvitað svo að ríkið á ekkert með að segja fullorðnum, sjálfráða einstaklingum hvað þeir mega setja ofan í líkama sinn. Steingrímur J. Sigfússon kýs danskan öl á meðan aðrir kjósa fínkorna neftóbak eða kannabisefni. Þegar löggjafinn treður sér þarna inn í líf fullorðins fólks býr hann ekki aðeins til svartan markað glæpamanna heldur brýtur einnig á eignarrétti einstaklingsins á eigin líkama, og er smekksatriði hvort mönnum finnst verra.
Ákveðin efni leiða ekki til ofbeldis, misnotkunar á börnum, óstjórnlegrar fíknar og gengdarlausra þjófnaða. Vinstrimennirnir héldu því fram þegar bjórinn var leyfður. Vinstrimenn í öllum flokkum halda þessu fram þegar um önnur efni en tóbak og áfengi er að ræða, og jafnvel sá neysluvarningur sleppur ekki við skítkastið. Vinstrimenn á Íslandi ættu að hugleiða að taka upp stefnu ýmissa vinstrimanna á meginlandi Evrópu og byrja sýna frjálsum einstaklingum örlítið umburðarlyndi í skiptum fyrir alla þessa forræðishyggju. Lögreglan hefur nóg að gera þótt hún sé ekki að eltast við unga menn í Kópavogi sem ekkert illt hafa í hyggju.
Geir Ágústsson kl. 14:25