« Eru gróðurhúsaáhrifin nauðsynleg til að minnka gróðurhúsaáhrifin? | Aðalsíða | Umboðsmaður skattgreiðenda »
7. júlí 2005
Gráðugu umhverfissóðarnir í Bandaríkjunum
Í gær fjallaði Vefþjóðviljinn um ýmsar staðhæfingar um umhverfismál og útblástur sem mörgum finnst gaman að varpa ábyrgðarlaust fram um Bandaríkin án þess að geta rökstutt með neinum haldbærum rökum. Um prýðilega umfjöllun er að ræða sem undirritaður mælir sterklega með að allir lesi. Staðreyndin er sú að Bandaríkjamenn hafa gríðarlega metnaðarfullar áætlanir um að minnka útblástur í landi sínu en ólíkt því sem felst í Kyoto-samkomulaginu þá eru úrræði Bandaríkjamanna bæði raunhæf og mannvænleg.
Auðvitað er alltaf spurning um getu mannsins til að hafa áhrif á loftslag jarðar á einn veg eða annan en kannski er allur varinn góður í þessum efnum eins og öðrum þótt hlutverk stjórnvalda sé bæði ofmetið og vafasamt.
Annað efni sem snýr að Bandaríkjamönnum er meint níska þeirra þegar kemur að aðstoð við fátækustu ríki jarðar (og þá gjarnan við íbúa þeirra í leiðinni en ekki bara spilltra stjórnenda þeirra). Nú er það svo að fátækt fólk í þróunarlöndum hefur ekkert við hlutföll að gera. Bandaríkjamenn gefa töluvert meira til Afríku en Evrópubúar og vega þar frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja þyngst. Ófrjáls framlög í gegnum skattkerfi Evrópu státa eingöngu af háum hlutföllum af þjóðarframleiðslu sem þegar allt kemur til alls hjálpa engum. Evrópubúum væri nær að verða ríkari og gefa lægri hlutföll af þjóðarframleiðslu en fleiri krónur í aðstoð ef það er á annað borð sú nálgun sem menn vilja taka í viðleitni til að slökkva samviskubit sitt vegna eigin velgengni miðað við aðra.
Geir Ágústsson kl. 07:00