« Hið alræmda bandaríska heilbrigðiskerfi | Aðalsíða | Lífið snýst um meira en peninga »
26. júlí 2005
Dapurleg framganga spellvirkja
Dapurlegt er að fylgjast með fréttum af Kárahnjúkasvæðinu um þessar mundir. Hópur sjálfskipaðra umhverfisverndarsinna gengur nú um og fremur skemmdarverk, stöðvar vinnu og málar yfir veglýsingar sem allt í senn er óábyrg, óyfirveguð og óverjandi hegðun. Eins og undirritaður hefur áður bent á virðist hegðun af þessu tagi vera að miklu leyti bundin við ýmis samtök vinstrisinnaðra einstaklinga sem telja sig geta tekið lögin í eigin hendur og oftar en ekki óbeint studd af öðrum vinstrisinnuðum einstaklingum. Ekkert bendir til að staðan sé önnur núna. Þó er engan veginn sagt að allir vinstrisinnaðir einstaklingar styðji hegðun af þessu tagi. Hins vegar gera sumir það.
Þótt undirritaður hafi sjálfur miklar efasemdir gagnvart ríkisframkvæmdum eins og þeim sem nú eru í gangi norðan Vatnajökuls er samt lítil hætta á að spellvirki og þvinganir verði meðölin sem gripið verður til til að segja sína skoðun. Vonandi verða skemmdarverk ekki á dagskrá mótmælenda í framtíðinni.
Geir Ágústsson kl. 14:14