« Evrópusambandið er vondur valkostur | Aðalsíða | Íslendingar og jafnrétti »
24. júní 2005
Umburðarlyndi samfélagsins gagnvart ofbeldi
Í dag féll dómur í hérðaðsdómi Reykjavíkur yfir mönnum vegna innflutnings á tilteknum efnum. Efni þessi geta einungis skaðað þá sem þau kjósa að nota en ekki saklausa borgar eins og t.d. byssur og hnífar. Einn mannanna fékk sex og hálfs árs fangelsi fyrir vikið.
Hvers vegna þurfa menn að gjalda fyrir eitthvað með tíund ævi sinnar, og oft meira (því heimilt er að dæma allt að 12 ára fangelsi vegna brota á löggjöf um fíkniefni) án þess að gera neinum manni mein? Það er ekki eins og innflytjendurnir hafi troðið kókaíni upp í nasirnar á neinum eða selt ósjálfráða einstaklingum efnin.
Og hvers vegna fá þá ekki hnífainnflytjendur - hvað þá hnífasölumenn - ekki sama dóm. Þeir höndla þó með vöru sem getur skaðað aðra en þá sem kjósa svo. Og hvað um þá sem raunverulega skaða aðra með ofbeldi. Af hverju fá ofbeldismenn margfalt minni refsingu nema þeim fáu tilfellum sem þeim tekst svo gott sem að murka lífið úr saklausu fórnarlambinu?
Ef umburðarlyndi fólksins í samfélaginu endurspeglast í réttarstöðunni er ranglátt fólk sem býr í þessu samfélagi. Ef réttarstaðan endurspeglar ekki vilja meirihlutans ætti það hinsvegar að leiða til þess að lögum yrði breytt þannig að einungis þeir sem brjóta á rétti annarra þurfi að sitja í fangelsi.
Oddgeir Einarsson kl. 12:43