« Misskilið jafnrétti | Aðalsíða | Aftur til fortíðar »

6. júní 2005

Tvískinnungur Bandaríkjamanna

Nú eru réttarhöld að hefjast yfir Saddam Hussein, sem framdi ódæðisverk þegar hann var leiðtogi Íraks. Hann er m.a. sakaður um efnavopnaárásir gegn Kúrdum. Það er sjálfsagt að láta hann svara til saka, enda hefur hann að öllum líkindum valdið óbærilegum þjáningum annarra.

Hvað með Bandaríkjamenn? Væri ekki réttast að rétta yfir Bandaríkjaforseta vegna þeirra glæpa sem framdir hafa verið í nafni ríkisins þar í landi? Þúsundir manna hafa verið teknar af lífi með skipulögðum hætti í Bandaríkjunum. Þar eru dauðarefsingar leyfilegar.

Ég er ekki að segja að innrásin í Írak hafi ekki verið réttlætanleg. Vel má vera, að rétt sé að velta einræðisherra úr sessi þegar mögulegt er, ekki síst ef ætlunin er að koma á lýðræði í viðkomandi landi. Þetta dæmi sýnir hins vegar tvískinnunginn sem ríkir í Bandaríkjunum, þar sem refsigleðin er með ólíkindum og yfirvöld fremja fjöldamorð að yfirlögðu ráði.

Ívar Páll Jónsson kl. 15:58