« Töfralausnin - að skattleggja? | Aðalsíða | Hver ber ábyrgðina? »
14. júní 2005
Spellvirki í stað spjalls
Á Mbl.is má nú lesa eftirfarandi frásögn:
Lögreglan í Reykjavík handtók fyrir stundu þrjá einstaklinga sem ruddust inn á alþjóðlega álráðstefnu, sem nú fer fram á Nordica hóteli í Reykjavík, og slettu því sem líktist grænni málningu á ráðstefnugesti.Ekki er ætlun undirritaðs að bendla nokkurn málstað eða félagsskap við þessa árás á friðsama borgara. Ljóst er að engin samtök sem vilja láta taka sig alvarlega í umræðunni munu vilja kenna sig við barnabrek sem þetta. Hins vegar er freistandi að velta þessum viðburði fyrir sér og setja í samhengi við ýmislegt annað sem hefur gerst í íslenskum og norrænum stjórnmálum.
Rauðir róttæklingar í Kaupmannahöfn
Í mars 2003 gerðist sá frægi atburður að málningu var slett á forsætisráðherra Dana, Anders Fogh Rasmussen, í mótmælaskyni við stuðning Dana við innrás Bandaríkjamanna og Breta inn í Írak. Félagsskapur að nafni Globale Rødder birti sigri hrósandi fréttatilkynningu sem sagði frá atburðinum og benti á tengilið ef fjölmiðlar væru áhugasamir, en án þess að lýsa atburðinum sérstaklega á hönd sér. Umræddur félagsskapur lýsir sér sem antíkapítalískum og vonandi móðgast enginn ef samansemmerki er sett milli þess og þess að vera til vinstri í stjórnmálum.
Ljóst er að ekki þarf að leita langt til að finna fyrirmyndina að árásinni á Hótel Nordica, og mjög freistandi er að álykta að hugmyndafræði Dananna sem réðust að forsætisráðherra sínum og hugmyndafræði Íslendinganna sem réðust að hinum erlendu ráðstefnugestum sé ekki ýkja frábrugðin. Þó verður slíkt seint fullyrt að svo stöddu.
Í það heila tekið er engu að síður ákveðin viðleitni í gangi hjá vinstrisinnuðum þrýstihópum að beita sér fyrir eignaspjöllum til að vekja athygli á máli sínu.
Spurningin sem þá situr eftir er: Af hverju ekki að reyna ræða málin?
Ein spurning að lokum: Eru það ekki vinstrimennirnir sem harðast gagnrýna Bandaríkin og fleiri vestræn lýðræðisríki fyrir að vilja fara í hart áður en umræðuleiðin er útreynd?
Geir Ágústsson kl. 14:13