« Fléttulisti sérhagsmuna | Aðalsíða | Evrópusambandið er vondur valkostur »
22. júní 2005
Samkeppnislög í eðli sínu gegn fólkinu
Eftirfarandi frétt var á mbl.is í dag:
Microsoft fer að kröfum ESB
Nýjasti hugbúnaðarpakkinn frá Microsoft hefur ekki orðið þess valdandi að kaupendur hafa hlaupið í næstu verslun. Þvert á móti hafa þeir haldið að sér höndum. Um er að ræða nýja útgáfu af stýrikerfi fyrirtækisins, Windows XP N. Kaldhæðnir gagnrýnendur Microsoft segja N - ið standa fyrir No thanks. Um er að ræða stýrikerfi án Windows Media Player sem ESB skikkaði Microsoft til að skilja frá stýrikerfinu og selja sem sérstakan hugbúnað.Stýrikerfið kom í verslanir í dag í nokkrum löndum Evrópu.
Evrópusambandið sektaði Microsoft á síðasta ári vegna einokunartilburða um 608 milljónir dollara, sem er metupphæð fyrir þvílíkt hátterni. Niðurstaða Microsoft var sú að skilja stýrikerfið frá Windows Media Player og reyna þannig að koma til móts við kvaðir ESB.
Kaupmenn eru fullir efasemda um að þessi nýjasta útgáfa stýrikerfisins komi til með að seljast vel og segja margir að kaupendur haldi að sér höndum. Kjósi þeir fremur að nota gömlu útgáfuna, heildarpakkann þar sem spilarinn er samofinn stýrikerfinu.
Þarna sést að þvinganir yfirvalda hafa skilað notendum lélegri vöru en áður var. Ef hugbúnaðarpakkar frá Microsoft með spilarnnum meðfylgjandi voru það vinsælir að pakkinn var stærsta varan á markaði er það til merkis um að allir hafi keypt pakkana vegna þess að þeim fannst hann það besta sem var í boði. Þetta sannast svo nú þegar afurðin kemur aftur á markað efitr þvinganir ESB og salan er margfalt minni en áður.
Microsoft bjó til Windows. Microsoft bjó einnig til Media Player. Hvernig getur það verið ólöglegt að bjóða þessar tvær afurðir saman. Það er meira að segja þannig að Media Player fylgir ókeypis með Windows hugbúnaðinum. Microsoft neyðir engann til að kaupa hugbúnað sinn - það er öllum frjálst að kaupa hann ekki.
Merkilegt hvað stjórnvöld þráast við að eyðileggja góðar vörur í nafni samkeppnismála. Hvað halda menn að samkeppni gangi út á? Eiga allir að allir bjóða sæmilegar vörur? Má enginn bjóða vörur sem er margfalt betri en vara næsta fyrirtækis án þess að fá á sig grófar þvinganir stjórnvalda?
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 14:12