« Má gera léleg tilboð? | Aðalsíða | Tvískinnungur Bandaríkjamanna »
5. júní 2005
Misskilið jafnrétti
Mér finnst dálítið fyndið hvernig Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur beitir sér fyrir breytingum á lögum um ríkiserfðir með jafnrétti í huga. Tilgangur fyrirhugaðrar lagabreytingar er að tryggja konum innan konungsfjölskyldunnar jafnan rétt á við karla til ríkiserfða.
Þetta gerir lögin vissulega illskárri. Hins vegar er þetta dæmigert um þá sýn sem margir hafa á jafnrétti. Jafnrétti snýst ekki um karla og konur heldur að allir hafi sama rétt að lögum. Það er voðalega lítið jafnrétti þegar lög mæla svo fyrir að eingöngu meðlimir tiltekinnar fjölskyldu erfi ríkið. Alveg sama hvort það séu bæði karlkyns, kvenkyns, rauðhærðir, og jafnvel örvhentir fjölskyldumeðlimir sem eiga erfðaréttinn.
Oddgeir Einarsson kl. 14:20