« Hver ber ábyrgðina? | Aðalsíða | Borgar- hvað? »
15. júní 2005
Kapítalismi til að niðurgreiða sósíalisma
Svandís Ebba Ragnarsdóttir skrifar grein í Morgunblaðið í gær. Greinin er undarleg samsuða kapítalisma og sósíalisma. Svandís færir rök fyrir því að flutningur starfa til láglaunalanda sé siðferðislega réttur vegna þess að þannig eykst hagvöxtur. Hagvöxturinn virðist hins vegar, samkvæmt því sem Svandís segir, einungis hafa gildi sem undirstaða fyrir ríkisstyrkta velferðarþjónustu.
Svandís, sem rökstyður það að best sé að fólk hjálpi sér sjálft með því að vinna, heldur því þá fram að það sé einungis til að ríkisvaldið geti byrjað að hjálpa því með alltumlykjandi væntumþykju sinni.
Gylfi Ólafsson kl. 09:45