« Hinn óhagganlegi | Aðalsíða | Má gera léleg tilboð? »
3. júní 2005
Iðnaðarsósíalistar
Nú er talsvert rætt um áhrif svokallaðrar stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Vinstri grænir telja hana hafa slæm áhrif á hagkerfið, en svo tala aðrir um að allt sé á blússandi siglingu.
Eflaust er nokkuð til í því að framkvæmdir þær sem ríkisvaldið hefur stuðlað að hafi einhver neikvæð áhrif. Þegar ríkið ákveður að marka ákveðna stefnu í iðnaði, þjónustu eða öðrum atvinnugreinum þá er alveg víst að á einhvern verður hallað sem ekki í sérmeðferð hverju sinni. Væru Vinstri grænir við völd ætti iðnaður á borð við þann sem núverandi ríkisstjórn hyglir eflaust í vök að verjast.
Lausnin við þessu er einföld. Ríkisvaldið hætti einfaldlega afskiptum sem þessum af iðnaði og öðrum atvinnuvegum, ryðji aðgangshindrunum og íhlutunum úr vegi og láti markaðinn um að ákvarða umsvif iðnaðar, ferðaþjónustu, sjávarútvegs og svo framvegis.
Þessi lausn höfðar kannski ekki sérstaklega til Vinstri grænna, sem vilja helst stjórna öllu sem hreyfist. En hún er í anda takmarkaðra ríkisumvifa og afskipta sem Sjálfstæðismenn vilja oft kenna sig við. En því miður virðast þeir ekki vera sérstaklega áhugasamir um að hægja á iðnaðarsósíalistunum í Framsóknarflokknum.
Sævar Guðmundsson kl. 21:08