« Spellvirki í stað spjalls | Aðalsíða | Kapítalismi til að niðurgreiða sósíalisma »

15. júní 2005

Hver ber ábyrgðina?

Í Morgunblaðinu í gær er sagt frá því að svokallaðir Vinir Hellisheiðar hafi afhent aðstoðarmanni samgönguráðherra skýrslu um tjón af völdum umferðaróhappa á Hellisheiðinni. Flest þeirra hljótast af of litlu bili milli bíla og of miklum hraða.

Vinir Hellisheiðar, líklega fólk sem ekur heiðina mikið og reglulega, segja að skýrslan sé gott innlegg í umræðu um breikkun vegarins yfir Hellisheiði.

Þeim finnst ábyrgðin á umferðaróhöppunum sumsé hvíla á ríkinu. Er það liðin tíð að ökumenn beri sjálfir ábyrgð á ökulagi sínu?

Gylfi Ólafsson kl. 09:39