« Línan milli tjáningarfrelsisins og tjáningarhafta | Aðalsíða | Live 8 »
28. júní 2005
Hvað eru atvinnuveitendur að spá?
Sögur herma að í íslensku samfélagi leynist stór hópur hæfs vinnuafls sem tekur að sér störf í skiptum fyrir mun lægri laun en gengur og gerist. Þessi hópur getur unnið sömu eða sambærileg störf og aðrir, hefur sömu eða sambærilegu menntun, reynslu og hæfni og aðrir, en er engu að síður viljugur til að þiggja mun lægri laun en það sem gengur og gerist.
Gallinn er sá að atvinnurekendur virðast ekki gera sér grein fyrir tilvist þessa hóps, og hópurinn virðist ekki gera sér grein fyrir verðmæti vinnu sinnar.
Á Múrnum er nú boðið upp á grein sem fjallar um stöðu þessa hóps. Svo virðist sem ástæða þess að atvinnurekendur ráði ekki hina hæfu og vel vinnandi einstaklinga úr hinum ódýra og stóra hópi sé önnur af eftirfarandi:
Annars vegar að [einstaklingar þessa hóps] séu almennt lakari starfsmenn en [aðrir]. Fáir viðurkenna upp á sig slíka skoðun. Hin ástæðan er öllu líklegri, að [meintur launamunur á einstaklingum hópsins og annarra] sé hluti af hugmyndafræði ráðandi stétta sem líta ennþá á [aðra en þá sem tilheyra umræddum hóp] sem fyrirvinnur og að sú ráðandi hugmyndaf[ræ]ði móti raunar einnig sjálfsmynd [einstaklinganna í hópnum] sem gera þess vegna hógværar launakröfur.Þetta eru í besta falli fjarstæðar skýringar. Önnur og örlítið raunhæfari skýring gæti verið sú að einstaklingar umrædds hóps gera aðrar kröfur til samspils vinnu og fjölskyldu en aðrir einstaklingar, og það án þess að ráðandi stéttir hafi nokkuð um það að segja eða hafi nokkuð með það að gera. Önnur enn raunhæfar skýring á meintum launamun gæti verið sú að þessi hópur fái í raun engu lægri laun en aðrir einstaklingar ef allt er tekið með í samanburðareikningana. Sú skýring er reyndar ákaflega líkleg því ella væru atvinnurekendur í hörðu samkeppnisumhverfi hins frjálsa markaðar fyrir löngu búnir að uppgötva tilvist hinna ódýru og vel vinnandi einstaklinga hópsins, og einstaklingar hópsins væru fyrir löngu búnir að gera sér grein fyrir auknum möguleikum sínum á bættum launakjörum.
En kannski aðrar hvatir en umhyggja fyrir einstaklingum ákveðins hóps liggi bak við kenningar um tilvist láglaunðs hóps hæfra starfskrafta. Kannski hvatir eins og sérhagsmunir, atkvæðaveiðar og hræðsluáróður vegi meira en margan grunar. Ella hlýtur hver einasti einstaklingur hvers einasta hóps hverrar einustu flokkunar á fólki í samfélaginu að spurja sig: Hvað eru atvinnuveitendur að spá?
Geir Ágústsson kl. 11:57