« Af mótmælum | Aðalsíða | Samkeppnislög í eðli sínu gegn fólkinu »

21. júní 2005

Fléttulisti sérhagsmuna

MBL greinir frá hugmyndum Sjálfstæðismanna um fléttulista þar sem fólk fær sæti á listum á grundvelli tegundar kynfæra en ekki hæfileika. Það hallar sífellt undan fæti hjá þeim ágæta flokki sem eitt sinn stóð í stafni baráttu fyrir einstkalingsfrelsi.

Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna sumar konur eru sífellt að krefjast framgangs á grundvelli kynfæra sinna umfram hæfileika. Ekki undir nokkrum kringumstæðum yrði ég sáttur með árangur minn í lífinu ef hann væri af þeirri ástæðu einni að ég hefði ákveðna tegund kynfæra umfram önnur. Ég skil ekki þessa vitleysu.

Konur eru einstaklingar. Karlar eru einstaklingar. Það eru einstaklingar með hæfileika sem sækja um störf, bera sig eftir sætum á framboðslistum, semja bækur, skrifa leikrit, finna upp hluti eða fara til mennta. Það eru einstaklingar sem taka próf og fá einkunnir. Það eru einstaklingar sem aka bifreiðum í umferðinni á daginn og það eru einstaklingar sem leggja inn pantanir í viðskiptakerfi kauphalla víða um heim og eignast hluti í fyrirtækjum. Það er meira að segja einstaklingur sem skrifar þessa grein, og lesendum ekki ljóst hvers kyns hann er fyrr en komið er að undirskrift greinarinnar.

Það eru einstaklingar sem skipta máli en ekki ákveðin kynfæri, tiltekin húðlitur eða hver önnur sú mismunum sem fólki tekst að finna upp til að tryggja eigin framgang.

Ps. Það vekur einnig athygli að þær konur sem leggja til fléttulista Sjálfstæðismanna eru einnig þær sömu og hyggjast komast framarlega á þessa fléttulista. Það er gott að tryggja eigin framgang með fögru mali um jafnréttismál. Hins vegar blasir hinn raunverulegi tilgangur við öllum þeim sem kjósa að skoða málið.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 11:00