« Samkeppnislög í eðli sínu gegn fólkinu | Aðalsíða | Umburðarlyndi samfélagsins gagnvart ofbeldi »

23. júní 2005

Evrópusambandið er vondur valkostur

Óskabarn íslenskra jafnaðarmanna, Evrópusambandið, stendur nú á krossgötum. Seinasta skref í átt að enn samþjappaðra miðstjórnarvaldi ókjörinna skrifræðissinna í Brussel virðist ætla fara út um þúfur. Hin svokallaða stjórnarskrá Evrópu virðist ekki ætla komast í gegnum samþykktarferli aðildarríkja sambandsins. Hinn langi vegur sambandsins frá fríverslunarsvæði til báknsins sem það er í dag virðist hafa mætt þröskuldi sem erfitt ætlar að reynast að komast yfir.

Umræðan innan sambandsins snýst nú um framtíð sambandsins. Ljóst er að áframhaldandi samrunaferli er stopp í bili. Óskandi væri að sambandið tæki nokkur skref til baka. Auður Evrópu skapaðist í frjálsum viðskiptum. Sósíalisminn hefur síðan tekið völdin og afleiðingin er sú að í dag eru stærsti hagkerfi Evrópu stöðnuð og safna skuldum og skuldbindingum.

Evrópusambandið er óraunhæfur valkostur fyrir Ísland.

Geir Ágústsson kl. 16:20