« Íþróttir, menning, listir og hið opinbera | Aðalsíða | Töfralausnin - að skattleggja? »

13. júní 2005

Almannaheill

Konur á Íslandi og aðrir hópar hafa ítrekað staðið í skugga þess að það sem þær vilja að gert sé að hópar almennt telja gáfulegt að setja í framkvæmd sé í nafni almannaheilla. Til að benda stuttlega á hversu loðið hugtak þetta sé og hversu slæm rök það séu að vísa til almannaheilla máli sínu til stuðnings er vert að skrifa hér upp stutt brot úr frétt af vefnum vísir.is. Fréttin er um konur í Sádí-Arabíu:

Meðlimur í trúarbragðaráði landsins lagði í síðasta mánuði fram tillögu um að banni við því að konur keyrðu bíla yrði aflétt í áföngum. Trúarbragðaráðið neitaði að taka tillöguna á dagskrá og nú hefur hinn voldugi innanríkisráðherra landsins, Prins Nayef bin Abdul-Azis, tekið af öll tvímæli. Hann sagðist undrandi á að nokkrum manni hefði dottið í hug að vekja máls á þessu. Svona lagað sé ákveðið með tilliti til almannaheilla og heiðurs kvenna og hafi engan forgang.

Ráðherrann vísaði óbeint til þess að í Kúveit hefur fyrsta konan fengið sæti í ríkisstjórn landsins. Hann sagði að Sádi-Arabía ætti ekki að bergmála það sem gerðist í öðrum löndum.

Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 14:39