« Tilraunir með mannslíf | Aðalsíða | Nýstefnur »
3. maí 2005
Vindhögg
Mér var bent á færslu þar sem höfundur telur sig hafa skýrt orðið „nýfrjálshyggja“ og hafi þar snúið á færslu mína þar sem ég hafna orðinu og skýri það stuttlega.
Höfundur færslunnar notar ýmis orð sem hann telur flókin og líkleg til þess að afvegaleiða lesanda og láta viðkomandi fá þá tilfinningu að hér fari mikill spekingur með penna. Hins vegar er það ekki svo.
Hinn skondni endir málsins er sá að höfundur vitnar til einhverra kennara við Háskóla Íslands sem rök í málinu og segir þá hafa sagt hitt og þetta um nýfrjálshyggju. Svo þegar athugað er hvað Vísindavefur Háskólans hefur að segja um málið þá kemur í ljós að hann er alveg sammála undirrituðum en ekki hinum lærða höfundi greinarinnar.
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 00:18