« Eftirspurn án framboðs | Aðalsíða | Þegar glæpamönnum er gefinn markaður »

13. maí 2005

Stjörnustríð og leiðin til ánauðar

Líkt og svo margir aðrir bíð ég spenntur eftir nýjustu og jafnframt síðustu Stjörnustríðsmyndinni. Það er eitthvað sem hefur alltaf heillað við þennan heim sem George Lucas hefur skapað. Fyrir suma er eru það tæknibrellur sem heilla, epískir bardagar eða hasar. En fyrir mér er það hin sígilda saga á milli góðs og ills sem heillar.

Í þremur nýjustu myndunum sjáum við klassískt dæmi um leiðina til ánauðar. Stórt lýðræðisríki rotnar innanfrá vegna sérhagsmunagæslu, inngripa ríkisins í markaði og spilltra stjórnmálamanna. Ríkið nær að eyðileggja velferðarsamfélag frjálss markaðar með íhlutunum sínum, og þá kemur sterki maðurinn inn í myndina. Í þessu tilfelli er það öldungadeildarþingmaðurinn Palpatine, sem á sæti í hinu spillta þingi Lýðveldisins. Hann gerist kanslari, því að hann telur þinginu trú um að með járnaga geti hann lagað hlutina sem þingið hefur sjálft orsakað með spillingu sinni og sérhagmunagæslu. Völdin verða hans, og innan skamms verður hann keisari og Lýðveldið verður að Veldinu.

Ég er viss um að F. A. Hayek hefði haft gaman af Stjörnustríðsmynunum. Enda er mætti halda að sagan væri sótt í smiðju hans.

Jafnframt því að lýsa leiðinni til ánauðar sýnir Lucas ljósum og dökkum hliðum mannsins. Ljósu hliðarnar endurspeglast í Jedi riddurunum, friðarsinnum sem beita einungis valdi í vörn. Þeir virða sjálfsákvörðunarrétt manna yfir sjálfum sér, huga sínum og eignum. Líf þeirra snýst um að vernda þessi gildi sjálfræðis og friðar. Þeir eru frjálshyggjumenn.

En fylgismenn myrku hliðarinnar svífast einskis til að ná fram markmiðum sínum. Þeir drepa, stela, pynta og eyðileggja. Þeir eru hvatvísir og geta ekki staðist að beita því valdi sem þeir hafa. Þeir eru fasistar, kommúnistar, nasistar. Hverskyns samhyggjumenn.

Þessar tvær hliðar berjast enn í stjórnmálum dagsins í dag. Annarsvegar sú hlið sem velur hófsama beitingu valds. Og svo er það hin hliðin, sem notar máttinn til að fá vilja sínum framgengt og eyðileggur í leiðinni líf, fyrirtæki og framfarir.

En ég er ekki einn um þessar hugleiðingar mínar. Mark Thornton hefur ritað um stjörnustríðsmyndirnar á heimasíðu Mises Institute. Áhugasamir geta lesið um þátt I, II og III eftir Mark.

Sævar Guðmundsson kl. 15:42