« Alvöru mannréttindasamtök | Aðalsíða | Hugmyndaríkir og stjórnlyndir einstaklingar »
25. maí 2005
Pólitísk stefna fyrir opinber fyrirtæki
Fulltrúar R-listaflokka slógust í fjölmiðlum í dag. Tilefnið var ágreiningur um hvort Orkuveita Reykjavíkur eigi að selja raforku til tiltekins iðnaðar. Sala þessa opinbera fyrirtækis á raforku er orðið pólitískt deiluefni.
Framsóknarmenn eru fylgjandi því að Orkuveitan selji raforku til hugsanlegs álvers, enda er það sérstök hugsjón framsóknarmanna að ríkisvaldið stuðli að sem mestum áliðnaði hér á landi. Vinstri-grænir eru aftur á móti andvígir því að raforka sé seld til áliðnaðar, því þeir eru á móti áliðnaði.
Hér er augljóst dæmi um af hverju stjórnmálamenn og opinberir aðilar eiga ekki að standa í fyrirtækjarekstri. Þeir fara að stýra fyrirtækjunum eftir pólitískum skoðunum sínum, í þessu tilfelli eftir því hvort menn eru með eða á móti álverum.
Það er heldur ekkert nýtt við það að opinber fyrirtæki séu nýtt til að ná pólitískum markmiðum. Ríkisbankarnir fyrrverandi voru notaðir á þennan hátt og svo mörg önnur fyrirtæki. Réttir aðilar fengu rétta meðferð í þeim bönkum. Því neitar enginn í dag.
Það er mikilvægt að koma fyrirtækjum úr opinberri eigu og í einkaeigu, meðal annars til að tryggja að pólitísk sjónarmið ráði ekki stefnu þeirra. Orkuveitan, Landsvirkjun, Ríkisútvarpið og Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er meðal fyrirtækja sem ætti að einkavæða sem fyrst.
Sævar Guðmundsson kl. 20:38