« Vindhögg | Aðalsíða | 2005 Global Marijuana March »
3. maí 2005
Nýstefnur
Nýfrjálshyggja
Enn munnhöggvast menn á þessum síðum og úti í bæ (#) um muninn á nýfrjálshyggjunni og frjálshyggjunni. (1, 2)
Sveinbjörn segir í grein sinni 4.apríl að liberalism sé kallað frjálshyggja. Það er rangt. Liberalism er einatt þýtt sem frjálslyndisstefna. Sem dæmi má nefna að Frjálslyndi flokkurinn kallar sig Liberal Party á ensku. Libertarianism er frjálshyggja. Ef frjálshyggjumenn hætta að fylgja þeirri kenningu sem libertarianism markar, er eðlilegt að kalla þá nýfrjálshyggjumenn. Frjálshyggjufélagið telur ekki svo vera.
Mikill munur er á liberalism og libertarianism. Það er því eðlilegt að á meðan Sveinbjörn kallar liberalism frjálhyggju, að hann búi til nýtt orð á íslensku yfir libertarianism.
Aðrar ný-stefnur
Það er þó gaman að velta fyrir sér þessu forskeyti, ný-. Það hefur í fyrsta lagi nokkuð niðrandi blæ því það hefur verið notað sem tákn um að upprunalega stefnan hafi verið afvegaleidd og að fylgismenn hennar séu firrtir.
Það er skemmtilegt að skoða þá stjórnmálaflokka sem eru á þingi. Þeir hafa flestir afvegaleist eða þróast og standa því ekki fyrir þá stefnu sem þeir gerðu í byrjun eða sögðust allavega ætla að standa fyrir í byrjun.
Samfylkingin álítur sig vera nútímalegan jafnaðarmannaflokk sem þarf sérstaka nefnd til að ákveða hvert flokkurinn stefnir. Eðlilegt er því að kalla Samfylkingarfólk nýjafnaðarmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf sagst berjast fyrir einstaklingsfrelsi og minni afskiptum ríkisins. Þær hugsjónir hefur flokkurinn að mestu leyti lagt á hilluna og því er réttast að kalla flokksmenn nýsjálfstæðismenn.
Frjálslyndir telja sig vera liberal og frjálslynda. Það eru þeir ekki þar sem þeir eru vinstrisinnaðri en Samfylkingin. Þeir eru því með réttu nýfrjálslyndir.
Framsóknarflokkurinn hefur innifalinn í nafni sínu sókn áfram. Raunin er sú að framsóknarmenn eru einir mestu íhaldsmenn á þingi. Vegna þess að þeir sviga þannig fram hjá yfirlýstri stefnu sinni má kalla þá nýframsóknarmenn.
Vinstri Grænir eru ekkert nútímalegir. Þeir eru fastir í fortíðinni. Þeir mega því alveg heita Vinstri Grænir en ekki nývinstrigrænir.
Gylfi Ólafsson kl. 11:56