« Erfið mótsögn | Aðalsíða | Alvöru mannréttindasamtök »
23. maí 2005
Hvers vegna þarf að selja Símann?
Í Fréttablaðinu 28. apríl sl. spurði Björgvin Guðmundsson, viðskiptafræðingur, í fyrirsögn á grein sinni, Hvers vegna þarf að selja Símann? Greinina má nálgast hér á heimasíðu Björgvins. Spurningin vaknar í huga Björgvins af nokkrum ástæðum, og við gefum honum orðið:
Það er engin nauðsyn að selja Símann.Rekstur hans í höndum ríkisins gengur mjög vel. ...Björgvin heldur áfram og segir:
Þetta fyrirtæki hefur skilað milljörðum í hagnað á hverju ári um langt skeið og hefur fært ríkinu ómældar tekjur.Það finnast því engin rök fyrir einkavæðingu fyrirtækisins. ...
Algengasta slagorð einkarekstursmanna er að ekki megi hafa fyrirtæki í samkeppnisrekstri í höndum ríkisins.Þetta er rugl.Það er unnt að hafa fyrirtæki í eigu ríkisins í hlutafélagsformi eða í öðru formi með takmarkaðri ábyrgð og sjálfstæðum fjárhag þó ríkið eigi þau að mestu eða öllu leyti.Aðalatriðið er að þau fái ekki ríkisstyrki og ríkið leggi þeim ekki til neina fjármuni þannig að þau sitji við sama borð og einkafyrirtæki í sömu grein.Ljóst er að Björgvin misskilur nokkur atriði í málflutningi þeirra sem vilja ekki að ríkið standi í fyrirtækjarekstri. Það að benda á að rekstur ríkisfyrirtækis gangi illa eru ekki rök fyrir einkavæðingu þess. Hins vegar má nota slíka ábendingu til að afla einkavæðingarhugmyndinni fylgis. Rök fyrir einkavæðingu væru einhvern veginn á þessa leið, þar sem byrjað er á skilgreiningu:
Ríkið er stofnun sem hefur það hlutverk að vernda frelsi borgara sinna til athafna, eigna, orða og lífs gegn ofbeldi og tilraunum til frelsisskerðingar.Um þetta geta flestir íbúar flestra ríkja í hinum vestræna heimi sammælst.
Hvernig samræmist svo rekstur símfyrirtækis þessu hlutverki ríkisins? Ekki á einn einasta hátt. Hvað með sementsverksmiðjur, mjólkurbú, áfengisverslanir, skipafélög, banka, sprotafyrirtæki, heilsugæslustöðvar, útvarpsstöðvar og rafveitur? Sama svar. Sem betur fer hafa stjórnmálamenn séð sóma sinn í því síðustu ár að mjaka hinu raunverulega ríkisvaldi nær hinu skilgreinda hlutverki sínu, en betur má ef duga skal. Hið opinbera á ekki að standa í rekstri símfyrirtækis af því rekstur símfyrirtækis er ekki eitt af verkefnum hins opinbera. Gildir þá einu þótt ekkert símfyrirtæki yrði á Íslandi ef ríkið ræki ekki eitt slíkt. Gildir þá einu hvort ríkið er að keppa við 100 önnur símfyrirtæki eða ekkert. Gildir þá einu hvort rekstur símfyrirtækisins gengur vel eða illa.
Ég veit ekki hvernig sumt fólk skilur texta stjórnarskrár Íslands á þann hátt að ríkið eigi að vasast í rekstri þjónustu-, smávöru- og tæknifyrirtækja. Eitt er að skilgreina hlutverk ríkisins - eitthvað allt annað er að ákveða hvaða verkefni ríkið á að taka sér fyrir hendur.
Geir Ágústsson kl. 13:55