« Barnapössun á fullorðnu fólki | Aðalsíða | Af pólitískri íhlutun »
11. maí 2005
Enn ein stofan
Nú á að stofna enn eina stofuna og að þessu sinni á afkvæmið að heita Neytendastofa. Frumvarp til laga um stofnun stofunnar er nú til umræðu og sitt sýnist hverjum um ágæti þeirra.
Um hlutverk hinnar nýju stofu segir: Helsta markmiðið með því að setja Neytendastofu á fót er að efla starf að neytendamálum og þar með auka neytendavernd. Í fyrstu grein frumvarpsins segir: Neytendastofa er ríkisstofnun sem starfa skal að stjórnsýsluverkefnum á sviði neytendamála, vöruöryggismála, opinberrar markaðsgæslu, mælifræði og rafmagnsöryggismála svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Neytendastofa heyrir undir viðskiptaráðherra.
Allir sem fylgjast með vita að ríkisvaldið dregur sjaldnast saman seglin í fjár- og stjórnþörf þegar hinum og þessum ríkisskrifstofum er safnað saman í hinar og þessar stofur eða stofnanir. Fyrir því er ekki til eitt einasta dæmi. Báknið vex.
Með öðrum orðum má segja að um enn einn arm á ríkisrekinni forræðishyggju verði að ræða. Vissulega er þörf á öryggi og eftirliti, bæði á frjálsum markaði sem og í leikskólum og á barnavöllum, en til að sinna eftirliti sem slíku þarf ekki nýjar ríkisstofnanir. Hvar er ógnin í dag og þörfin á hinu aukna eftirliti? Með stofustofnun sem þessari er eingöngu verið að taka enn eitt skrefið í þá átt að firra einstaklinga fullkomnlega ábyrgð á eigin gjörðum með því að troða ríkisnefinu enn nær daglegu lífi fólks.
Vert er að hafa í huga að ríkisstofnanir byggja afkomu sína á tveimur stoðum: Þeirri að vandamálin sem þær eiga að leysa leysast ekki því þá er grundvelli stofnananna ógnað, og þeirri að vandamálin sem þær eiga að leysa séu í þann mund að leysast ef bara kæmi til örlítið meira fé úr vösum skattgreiðenda. Af þessum ástæðum er tilhneiging ríkisstofnanna alltaf sú að vaxa og aldrei sú að minnka, og það án þess að nokkur árangurs sé að vænta!
Stjórnarandstaðan á alla samúð skilið í baráttunni gegn þessu frumvarpi. Þó getur undirritaður ekki tekið undir rök stjórnarandstöðunnar, en það er önnur saga og lengri.
Geir Ágústsson kl. 13:42