« Af pólitískri íhlutun | Aðalsíða | Stjörnustríð og leiðin til ánauðar »

12. maí 2005

Eftirspurn án framboðs

Ein skýrasta afleiðing ríkisrekstrar er ósamræmi milli framboðs og eftirspurnar - þar sem ríkið sér um að veita vöru eða þjónustu er verð ekki lengur nothæft tæki til að stilla saman framboð og eftirspurn eins og á frjálsum markaði. Áhrif þess á daglegt líf eru fjölmörg, og svo nokkur dæmi séu tekin:

Myndin er vonandi orðin skýr. Framboð og eftirspurn tengjast saman með verðinu sem tiltekin vara eða þjónusta kostar, sem aftur er háð væntanlegu framboði, væntanlegri eftirspurn, væntanlegum breytingum á aðgengi að hráefnum, og svona mætti lengi telja. Ríkisvaldið telur sig geta sett ákvarðanir þúsunda einstaklinga á frjálsum markaði í skúffu á skrifstofu ráðuneytis og tekið ákvörðun sem ekki veldur sjúklingum löngum þjáningum eða námsfúsum nemendum óþarfaheilabrotum. Er von að verkefnið sé dæmt til að mistakast?

Geir Ágústsson kl. 15:44