« Skömmtum þingi skatta | Aðalsíða | Enn ein stofan »
9. maí 2005
Barnapössun á fullorðnu fólki
Neytendasamtök Dana, Forbrugerraadet, krefjast þess nú að yfirvöld innleiði sérstakar merkingar á öll matvæli sem eiga að segja til um hollustu þeirra. Nánar má lesa um tillögur samtakanna hérna. Í stuttu máli ganga þær út á að grænir (hollt), gulir (hvorki hollt né óhollt) eða rauðir (óhollt) broskallar verði settir á allar umbúðir matvara og þannig geti neytendur orðið betur upplýstari um hollustu þess sem þeir setja í innkaupakörfuna. Þetta gæti ýmsum fundist vera góð hugmynd. Hugsanlega eiga lesblindir erfitt með að lesa innihaldslýsingar og töfluyfirlit með innihaldi og hlutfalli fitu, kolvetna, orku og próteina. Hugsanlega er slíkt of tímafrekt í hröðu nútímasamfélagi. Hugsanlega gera sér ekki allir grein fyrir áhrifum dýrafitu á kransæðarnar eða sykurs á tennurnar. Þessi vandamál og fleiri mætti leysa með einum broskalli í ákveðnum lit.
Hins vegar eru nokkur vandamál sem skjóta upp kollinum: Er hægt að réttlæta kostnaðinn við merkingarnar miðað við ávinninginn? Á að skipa bakaríum, veitingaþjónustum og veitingahúsum að merkja bakkelsi sín og matardiska? Hver ákveður hvað er hollt fyrir alla og hvað er óhollt fyrir alla? Er eitthvað slíkt til sem heitir jafnhollt eða jafnóhollt fyrir alla?
Svona mætti lengi telja. Ríkisafskipti af þessu tagi eru gríðarlega varasöm og ávinningur þeirra er í besta falli ósannanlegt tilfinningalegt mat. Í grunninn á hins vegar ekki að þurfa velta sér mikið upp úr hagnýtum atriðum við svona tillögur - þær eru einfaldlega óréttmæt ríkisafskipti og siðlaus skerðing á frelsi einstaklinga til að hugsa, velja og hafna. Upplýsingar eru góðar og blessaðar ef eftir þeim er óskað, en vonandi verður neyslufasismi sem þessi aldrei pólitískt umræðuefni á Íslandi né nokkurs staðar utan Danmerkur.
Geir Ágústsson kl. 12:26