« Hvers vegna þarf að selja Símann? | Aðalsíða | Pólitísk stefna fyrir opinber fyrirtæki »

25. maí 2005

Alvöru mannréttindasamtök

Amnesty International eru alvöru mannréttindasamtök. Þau eru ekki einhver skrifstofa úti í bæ sem biður ríkið um að taka peninga af fólki gegn vilja þess í stað þess að láta sér nægja peninga sem fólk gefur af fúsum og frjálsum vilja til starfseminnar.

Í nýútkominni ársskýrslu samtakanna eru umfangsmikil og handahófskennd beiting dauðarefsinga í Kína gagnrýnd en hátt í 90% af dauðarefsingum í heiminum árið 2004 voru í Kína. Athyglisvert er að sjá hvernig alvöru mannréttindasamtök gagnrýna dauðarefsingarnar í Kína.

Gagnrýnin beinist m.a. að því að í mörgum tilvikum höfðu þeir sem hlutu dauðadóm gerst sekir um glæpi á borð við fíkniefnabrot, en ekki ofbeldisglæpi.

Þetta er auðvitað rétt hjá Amnesty og ber að fagna því að það sjónarmið sé við lýði á þeim bænum að önnur sjónarmið eigi við um ofbeldisbrot en önnur brot. Ríkið á auðvitað ekki að drepa neinn. Allra síst þá sem ekki hafa gert á hlut neins.

Það væri síðan óskandi ef í mannréttindum fælist að fá að losna við öll afskipti ríkisvaldsins vegna eitthvers sem ekki brýtur gegn rétti neins. Ekki bara í afskipta í formi morða af þess hálfu heldur allra afskipta.

Oddgeir Einarsson kl. 14:14