« Enn ein stofan | Aðalsíða | Eftirspurn án framboðs »
11. maí 2005
Af pólitískri íhlutun
Eitt helsta tromp Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra í umræðum um hvort verið sé að hygla stórfyrirtækjum með breytingum á samkeppnislögum hefur verið það að hún hafi nú beitt sér fyrir því að Samkeppnisstofnun tæki olíufélögin fyrir.
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mætti Valgerði í Kastljósi RÚV í kvöld. Jóhanna sá merki um „politíska íhlutun“ í hverju horni. Ásakanir Jóhönnu sneru annars vegar að lagabreytingum, sem í eðli sínu geta ekki verið annað en pólitísk aðgerð, og hins vegar að mögulegri íhlutun ráðamanna í framtíðinni ef lagabreytingarnar ná fram að ganga.
Valgerður spilaði þessu olíutrompi sínu út enn einu sinni. Nei, það yrði sko engin hætta á pólitískri íhlutun. Og hver skyldu ástæðan vera? Jú, hún hafði sko hlutast til um að olíufélögin yrðu tekin fyrir.
Fyrir stuttu hrópuðu vinstrimenn sig hása um að Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefði í forsætisráðherratíð sinni hlutast til um að Baugur yrði rannsakað af skattayfirvöldum. Hvers vegna í ósköpunum grípa þeir ekki tækifærið og gagnrýna Valgerði Sverrisdóttur fyrir að hafa farið algerlega út fyrir sitt verksvið með að hafa afskipti af daglegum störfum Samkeppnisstofnunar? Manneskjan játar þetta beinlínis trekk í trekk án þess að nokkrum manni detti í hug að þetta sé óeðlilegt.
Ræðst réttmæti svona afskipta eins og Valgerður viðhafði og Davíð er sakaður um af því hver niðurstaðan verður úr rannsókninni sem viðkomandi náði að hrinda í gang?
Ef í ljós hefði komið, eftir að starfsmenn Samkeppnisstofnunar voru búnir að lesa óteljandi tölvupósta starfsmanna og gramsa í skúffum þeirra, að olíufélögin hefðu engin lög brotið, hefðu afskipti Valgerðar þá verið eðlileg?
Ef Davíð hefði í raun haft hönd í bagga með að Baugur var rannsakað hefði það þá verið allt í lagi og jafnvel aðdáunarvert ef upp hefði komist um að lög hefðu verið brotin?
Þetta er sú lína sem þær stöllur Valgerður og Jóhanna boða. Þetta er alveg glæný lína. Vonandi munu lönd sem vilja bera sig saman við Ísland taka þetta upp eftir okkar pólitíkusum.
Oddgeir Einarsson kl. 21:33