« Nýstefnur | Aðalsíða | Skömmtum þingi skatta »

7. maí 2005

2005 Global Marijuana March

Í dag verða haldnar kröfugöngur í yfir 150 borgum í heiminum sem bera yfirskriftina 2005 Global Marijuana March. Er þetta í sjötta sinn sem slíkar göngur eru haldnar og umfang þeirra vex með hverju ári, bæði að fjölda og stærð. Þátttakendur hafa það að markmiði að fá hnekkt lögbanni á kannabisefnum og segja að reykingar á þeim séu friðsöm athöfn friðsams fólks sem yfirvöld eigi ekkert með að banna. Frjálshyggjumenn og aðrir frjálslyndir einstaklingar á Íslandi nota væntanlega tækifærið og spurja sig hvers vegna kannabisefni eru bönnuð með lögum. Hvern er verið að vernda, hvaða rétt hafa stjórnvöld til að skipta sér af frjálsum einstaklingum með þessum hætti og hvaða hættur fylgja lögbanninu?

Geir Ágústsson kl. 11:39