« Frönsk rómantík? | Aðalsíða | Nokkrar niðurstöður í annars ómerkilegu fréttastjóramáli »

1. apríl 2005

Tilkynning frá fréttamönnum RÚV

Hvernig er hægt að hafa samúð með þeim sem senda tilkynninguna að neðan frá sér? Halda þeir að þeir getist talist hlutlausir fréttamenn, eftir að hafa látið svona vegna ráðningar á grundvelli meðmæla pólitísks útvarpsráðs?

Það er líka augljóst hvernig þeir mistúlka það sem Auðun segir, en hann er augljóslega að reyna að sýna að hann vilji starfa með þeim sem starfi þarna áfram. Heiftin er svo mikil að þeir sýna enga sanngirni.

Ég held að þeir ættu líka að passa að tala ekki um að landið sé „lýðfrjálst“ á meðan fólk er neytt til að borga fyrir fréttirnar þeirra.

Annað orð sem notað hefur verið í þessu samhengi er „lýðræði“. Er það ekki lýðræði að kjörnir fulltrúar velji yfirmenn fyrirtækja í eigu ríkisins? Er það lýðræði að starfsmenn ríkisfyrirtækja ráði þeim?

Þetta mál sýnir vel, eins og allt virðist gera þessa dagana, hversu mikilvægt það er að selja RÚV. Kannski starfsmennirnir vilji kaupa? - Ef þeir gera það mega þeir ráða hvaða fréttastjóra sem er.

Tilkynningin:
„Auðun Georg Ólafsson, nýráðinn fréttastjóri fréttastofu Útvarps, kom til starfa í morgun og hélt stuttan fund með fréttamönnum. Þar kom fram hjá honum, að hann ætlaði að gera vel við þá sem vildu starfa með honum en sagðist skilja og virða þá ákvörðun þeirra sem vildu það ekki og hættu störfum. Jafnframt greindi hann frá því, að hann hefði haft samband við nokkra menn og beðið þá að vera til taks ef núverandi fréttamenn legðu niður störf.

Þetta eru beinar hótanir af hálfu hins nýja fréttastjóra. Hans stefna er augljóslega að deila og drottna. Það á greinilega að kaupa menn til samstarfs en losa sig við þá sem ekki fylgja nýjum siðum. Við teljum þessar stjórnunaraðferðir í hrópandi ósamræmi við uppbyggingu opinberrar þjónustu í lýðfrjálsu landi. Ríkisútvarpið er þjónustustofnun í almannaþágu og verður að vinna í þeim anda.

Neyðarástand er að skapast á Ríkisútvarpinu. Fjölmennur fundur starfsmanna samþykkti í gær vantraust á útvarpsstjóra vegna ráðningar Auðuns Georgs Ólafssonar, með 93% greiddra atkvæða. Útvarpsstjóri er ekki fær um að leysa þann vanda sem uppi er.

Við heitum á alþingismenn að standa vörð um Ríkisútvarpið sem þjónað hefur þjóðinni í nær sjötíu og fimm ár.“

Gunnlaugur Jónsson kl. 17:02