« Frelsi eflir byggð | Aðalsíða | Af alræði markaðarins »
22. apríl 2005
Sósíalistum fagnað
Mig langar að hrósa sósíalistastjórninni á Spáni. Hún hefur nú samþykkt lög sem veita samkynhneigðum pörum sömu réttindi og gagnkynhneigðum. Nú munu spænskir hommar og lesbíur geta gift sig og ættleidd börn. Hefur þetta mætt mikilli andstöðu Rómversk-kaþólsku kirkjunnar.
Það ætti ekki að skipta máli varðandi réttarstöðu manna hvaða kyn þeir girnast.
Reyndar ætti ekki að heldur skipta neinu máli almennt hvaða fjölskylduform menn kjósa. Þannig ætti einnig að afnema lög sem mismuna einhleypum gagnvart fólki sem býr saman. Vígsla í einhvern trúarsöfnuð eða önnur opinber skráning á fjölskylduformi ætti ekki að skipta neinu máli fyrir réttarstöðu manna.
Trúarsöfnuðum ætti að vera frjálst að hafa eins asnalegar reglur og þeir vilja og mismuna fólki hægri vinstri ef þeir vilja það. Þeir ættu að vera algerlega utan afskipta ríkisvaldsins og giftingar eða hvað sem þeir kjósa að kalla athafnir sínar ættu ekki að hafa nein áhrif að landslögum.
Oddgeir Einarsson kl. 08:45