« Af íhaldsmanni og rökum hans | Aðalsíða | Þangað til ofbeldinu linnir »

7. apríl 2005

Sáttin sögulega

Ímyndum okkur að þú, lesandi góður, opnaðir fréttamiðil á morgun.

Útgangspunkturinn væri fagleg og sjálfstæð vinnubrögð fréttamanna og að fréttir væru sagðar á hlutlægan hátt. Þetta líkaði almenningi vel. Stöðin þín fengi sífellt meira áhorf vegna þess að fréttir þínar væru vandaðar.

Einn daginn gerist það að áhorfið er komið nálægt þeim mörkum sem hin sögulega sátt stjórnmálaflokkanna leyfir. Hvað gerir þú þá?

Jú, til þess að þú megir áfram segja fréttir þínar á lögmætan hátt, þá sérðu til þess að áhorfið aukist ekki meira. Það er einfalt í framkvæmd. Þú ferð bara að segja hlutdrægar og óvandaðar fréttir.

Þá verða allir sáttir, ekki satt?

Oddgeir Einarsson kl. 20:42