« Gagnagrunnar á alls konar sviðum | Aðalsíða | Af orðum og athöfnum »
5. apríl 2005
Ókeypis ferð til Rómar
Þetta stóð á mbl.is í dag:
Tilkynnt hefur verið að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra verði viðstaddur útför Jóhannesar Páls páfa II sem fram fer í Róm á föstudag fyrir Íslands hönd.
Já það er auðvelt að redda sér ókeypis utanlandsferðum ef maður vinnur hjá Ríkinu. Til hvers þarf forsætisráðherra að vera viðstaddur útför leiðtoga ákveðinnar trúarreglu? Ætlar hann að vera viðstaddur útför leiðtoga allra helstu trúarreglna í framtíðinni?
Það er erfitt að skilja þessa vitleysu.
Friðbjörn Orri Ketilsson kl. 19:12