« Hræsnin á Alþingi | Aðalsíða | Gagnagrunnar á alls konar sviðum »
4. apríl 2005
Ódýrir símar til sölu
Það er gott fyrir alla að ríkið ætli ekki lengur að reka símafyrirtæki. Ástæðan er m.a. sú að við munum áfram geta hringt án þess að ríkið skipti sér af með öðrum hætti en að taka peninga af þeim sem bjóða upp símþjónustu.
Þó svo verðið fyrir Símann skipti minna máli en það að losna við ríkisreksturinn sem fyrst hefði að ósekju mátt haga sölunni þannig að sem mest verð fengist. Með því að leyfa einum aðila ekki að eiga meira en ákveðið stóran hlut í fyrirtækinu lækkar heildarsöluverðið.
Samanlagt verðmæti lítilla hluta í fyrirtækinu er minna en verðmæti stórs hlutar. Þess vegna munu áform stjórnvalda leiða til þess að ríkissjóður fær minna þó að kaup og sala með hluti eftir einkavæðingu muni leiða til svipaðrar niðurstöðu hvað eignarhald varðar.
Þetta eru sömu mistök og R-listinn er að gera með því að selja ekki lóðir á fullu verði. Verðmætið minnkar ekki, heldur aðeins sú fjárhæð sem fer í kassann, söluverðið.
Með útboði hefðu aðilar geta boðið í allan hlutinn saman, eftir atvikum í ákveðnum hlutföllum sín á milli ef aðilar teldu það hagkvæmt. Þá hefði ríkið fengið að fullu greitt fyrir hið selda.
Oddgeir Einarsson kl. 19:13