« Á kostnaðarverði | Aðalsíða | Gullhúðaðir bílar »
28. apríl 2005
Nýfrjálshyggjumenn
Sumum vinstrimönnum finnst gaman að kalla frjálshyggjumenn nýfrjálshyggjumenn. Þetta á að vera skammaryrði, tákna öfgamennsku.
Ég hef loks komist að því hvað það þýðir að vera nýfrjálshyggjumaður.
Hópur nýfrjálshyggjumanna í Bandaríkjunum heldur úti bloggsíðu og gefur út blaðið The New Libertarian (Nýji frjálshyggjumaðurinn). Þeir kalla sjálfa sig neolibertarians.
Að eigin sögn er það sem greinir þá frá öðrum frjálshyggjumönnum það að þeir eru menn málamiðlana, á meðan hefðbundnir frjálshyggjumenn halda fast í hugmyndafræði sína og eru tregir til samstarfs. Þeir segja markaði siðlaus fyrirbæri sem ríkið þurfi að setja mörk. Þeir segja eignarrétt og frelsi ekki algild fyrirbæri.
Nýfrjálshyggjumenn eru því einskonar sjálfstæðismenn. Menn sem tala um frelsi og frjálsa markaði, en vilja samt setja frelsi og mörkuðum frekari skorður. Þeir byggja ekki skoðanir sínar á siðferðislegum grundvelli um hvað er rétt og rangt, heldur hvað hentar hverju sinni. Stefna þeirra er hentistefnufrjálshyggja.
Það er því ljóst að þegar vinstrimaðurinn kallar frjálshyggjumann nýfrjálshyggjumann, er það móðgandi. Þó það sé ef til vill ekki á þann hátt sem vinstrimaðurinn heldur.
Sævar Guðmundsson kl. 00:20