« Meira um gagnagrunna | Aðalsíða | Þegar verkin tala »

12. apríl 2005

Málþing, fimmtudag kl. 12 í Iðnó - Ingibjörg Sólrún verður gestur okkar

Frjálshyggjufélagið mun standa fyrir málþingi um lokaskýrslu fjölmiðlanefndar, næstkomandi fimmtudag kl 12.00, í Iðnó við Vonarstræti 3.

Á fundinum mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir halda tölu um það starf sem fjölmiðlanefnd hefur unnið, skýra út helstu álitamál og þau rök sem liggja að baki einstökum atriðum í lokaskýrslunni. Friðbjörn Orri Ketilsson mun svo fjalla um málið út frá sjónarmiði Frjálshyggjufélagsins. Á fundinum verða meðlimir og gestir félagsins auk þess sem flestum sem málið varðar hefur verið sent fundarboð.

Dagskráin verður með eftirfarandi hætti:
12:00 Fundur settur
12.05 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skýrir frá þeim viðfangsefnum og niðurstöðum sem fjölmiðlanefnd hefur kynnt með lokaskýrslu sinni.
12:15 Friðbjörn Orri Ketilsson ræðir málið út frá sjónarmiði Frjálshyggjufélagsins.
12:25 Við opnum fyrir spurningar úr sal þar sem gestum gefst kostur á að spyrja nánar út í efni ræðumanna.
12.45-12.50 Fundi slitið

Gestum gefst færi á að kaupa súpu og brauð á meðan fundi stendur.

Það eru allir velkomnir og við vonum að þið sjáið ykkur fært að mæta,

Frjálshyggjufélagið.

Nánari upplýsingar gefur:
Ágúst Bjarnason í síma 8206044
agust@icetronica.is

Ágúst Bjarnason kl. 10:45